Litlar skemmdir á Lagarfljótsbrúnni
Ekki virðast hafa orðið teljandi skemmdir á brúnni yfir Lagarfljót, milli Egilsstaða og Fellabæjar, þegar eldur kviknaði í rafstreng sem liggur undir henni í dag. Umferð yfir hana er orðin eðlileg á ný.Telja umhverfismat vegna fiskeldis í Seyðisfirði ónýtt
VÁ! – félag um vernd fjarðar telur Fiskeldi Austfjarða ekki hafa farið að lögum við gerð frummatsskýrslu fyrir fyrirhugað fiskeldi í Seyðisfirði. Lögfræðingar félagsins segja fullyrðingar fyrirtækisins um að eldið falli ekki undir nýleg lög um skipulag haf- og strandsvæða ekki standast þar sem eldissvæðum hafi verið fjölgað eftir að lögin tóku gildi.Einn í einangrun vegna landamærasmits
Einn er í einangrun vegna smits á Austurlandi. Um landamærasmit er að ræða og tengist komu tuttugu og fimm manna hóps með Norrænu fyrir þremur vikum síðan.Minningarreitur um skriðuföllin á Seyðisfirði í bígerð
Hugmyndavinna um minningarreit um skriðuföllin á Seyðisfirði er hafin. Aðalheiður Borgþórsdóttir fulltrúi sveitarsstjóra í heimastjórn Seyðisfjarðar segir að málið sé á frumstigi.Nýtt sorphirðudagatal væntanlegt á næstu dögum
Nýtt sorphirðudagatal fyrir Múlaþing og Fljótsdalshrepp verður birt á næstu dögum. Dráttur hefur orðið á því vegna breytinga á sorphirðu á Austurlandi.Blængur með 150 milljóna króna aflaverðmæti
Frystitogarinn Blængur NK sigldi inn á Norðfjörð í blíðunni í gær að lokinni vel heppnaðri veiðiferð. Aflaverðmætið nam um 150 milljónum kr. eftir 21 dags veiðiferð.