Stolnu þingsætin

Eins og greint hefur verið frá í Austurfrétt og víðar benda skoðanakannanir Gallup til þess að Píratar endurheimti þingsæti sitt í Norðausturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum.

Það yrði vitanlega ánægjulegt fyrir þann er þessi orð ritar, en það er líka áhugavert að skoða hver gæti hreppt jöfnunarþingsæti kjördæmisins, svona í ljósi þess hve mikilvæg jöfnunarþingsætin eru í sambandi við hlutfall milli þingsæta og heildarfjölda atkvæða hvers flokks. Samkvæmt útreikningum kæmi þetta þingsæti í hlut Sósíalistaflokksins.

 

Undanfarna daga hafa verið fluttar fréttir af því að vegna galla á kosningakerfinu, þ.e. vegna of fárra jöfnunarþingsæta, sé hugsanlegt að einhverjir flokkar fái fleiri þingmenn við kosningarnar í haust en þeim ber í raun og veru. Einhverjir flokkar muni, að sama skapi, fá færri þingmenn, en þeir hefðu átt að fá.


Þessi skekkja er engin nýlunda, en í gegnum tíðina hefur hvað eftir annað komið upp sú staða að tilteknir stjórnmálaflokkar hafi fengið færri þingmenn en aðrir, þrátt fyrir meiri heildarfjölda atkvæða. Með öðrum orðum: Sumir flokkar hafa haft einn og einn þingmann af öðrum flokkum vegna kerfisgalla.


Þennan vanda mætti laga með því að fjölga jöfnunarþingsætum verulega. Það þarf enga breytingu á stjórnarskrá eða umbyltingu kosningakerfisins í heild sinni. Einföld breyting á kosningalögum, líkt og sú sem núverandi þingflokkur Pírata gerði tillögu um á Alþingi þann 2. febrúar sl., leysir úr þessu. Með henni verður tryggt að enginn flokkur fær fleiri þingmenn en atkvæðafjöldi segir til um.


Það er skemmst frá því að segja að þessi breytingartillaga Pírata var “svæfð” í nefnd eftir að mælt hafði verið fyrir henni í þingsal. Það er stórundarlegt að ekki hafi verið áhugi til staðar hjá stjórnarmeirihlutanum á því að leiðrétta þessa augljósu skekkju. Eftir stendur spurningin: Hvaða flokkur “stelur” þingsæti af hverjum við Alþingiskosningarnar í haust?


Einar Brynjólfsson er oddviti Pírata við Alþingiskosningarnar þann 25. september næstkomandi.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.