Elvar Ægisson valinn íþróttamaður Hattar

hottur_ithrottamadur_0023_web.jpg
Knattspyrnumaðurinn Elvar Þór Ægisson var valinn íþróttamaður Hattar á þrettándagleði félagsins og sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs á sunnudagskvöld. Starfsmerki félagsins voru afhent í fyrsta sinn við sama tilefni.

Elvar spilaði með Hetti í fyrstu deild karla í sumar. Hann lék 25 leiki og var markahæstur í liðinu með tíu mörk. Elvar lék nánast alla leikina frá upphafi til enda og fékk ekki eitt gult spjald.

Þá voru starfsmerki Hattar afhent í fyrsta sinn en þau hljóta einstaklingar sem lengi hafa unnið óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Kristján Guðþórsson hlaut starfsmerki Hattar fyrir vinnu sína í þágu knattspyrnu og Guðný Margrét Hjaltadóttir fyrir vinnu sína í þágu körfubolta og skíða.

Hver deild útnefnir einn íþróttamann en aðalstjórn félagsins velur einn úr þeim hópi. Eftirtaldir eru íþróttamenn ársins hjá deildum Hattar.

Blak : Jón Grétar Traustason
Fimleikar: Valdís Ellen Kristjánsdóttir
Frjálsíþróttir : Daði Fannar Sverrisson
Knattspyrna : Elvar Þór Ægisson
Körfubolti : Sigmar Hákonarson
Sund : Hubert Henryk Wojtas
Taekwondo : Hjálmar Elíeserson

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar