Fjórtán styrkjum úthlutað úr Spretti

sprettur sumar2013Átta ungir íþróttamenn, fjórir þjálfarar og tvö félög fengu nýverið samtals 760.000 krónur þegar úthlutað var úr Spretti – styrktarsjóði Fjarðaáls og UÍA. Fjarðaál hefur aukið framlag sitt í sjóðinn.

Styrkirnir að þessu sinni skiptast þannig að átta iðkendur undir 18 ára aldri skipta með sér 360.000 krónum hver. Fjórir styrkir, að upphæð 250.000 fara í fjögur verkefni sem tengjast þjálfun á svæðinu og tvö félög skipta með sér 150.000 til áhaldakaupa.

Fjarðaál leggur í ár til 2,5 milljónir króna í sjóðinn sem er milljón hærra en undanfarin ár. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári. Næst verður tekið við umsóknum í september en þá verður meðal annars úthlutað afreksstyrkjum. UÍA heldur utan um sjóðinn. Við úthlutun úr sjóðnum er lögð áhersla á barna- og unglingastarf og fjölbreytni.

Iðkendastyrkir:
Alexandra Sigurdórsdóttir, fimleikar, Höttur, 50.000
Eiríkur Ingi Elísson, skíði, SKÍS, 50.000
Kamilla Marín Björgvinsdóttir, sund, Neisti, 50.000
Kári Tómasson, mótorkross, VÍF, 50.000
Mikael Máni Freysson, frjálsar, Þristur, 50.000
Ólafía Ósk Svanbergsdóttir, sund, Þróttur, 25.000
Steinunn Bjarkey Gunnlaugsdóttir, fimleikar, Höttur, 50.000
Þuríður Lilý Sigurðardóttir, hestaíþróttir, Freyfaxi, 35.000
- Alls: 360.000

Þjálfarastyrkir:
Frjálsíþróttadeild Hattar v/ gestaþjálfara 100.000
Guðni Rúnar Jónsson, golfþjálfari, GKF, 50.000
Unnur Ása Atladóttir, strandblak, Þróttur, 50.000
Blakdeild Hattar, v/ þjálfaranámskeiðs, 50.000
- Alls: 250.000

Félagastyrkir:
Neisti v/ frjálsíþrótta 50.000
Valur v/ körfubolta 100.000
- Alls: 150.000

Hluti styrkþega í vorúthlutun 2013. Aftari röð frá vinstri: Guðrún Pétursdóttir (Val), Pálmi Fannar Smárason (Neista), Unnur Ása Atladóttir, Áslaug Sveinsdóttir (Frjálsíþróttadeild Hattar), Lovísa Hreinsdóttir (Blakdeild Hattar), Guðný Björg Hauksdóttir (Alcoa). Fremri röð frá vinstri: Ólafía Ósk Svanbergsdóttir, Steinunn Bjarkey Gunnlaugsdóttir, Alexandra Sigurdórsdóttir, Eiríkur Ingi Elísson og Mikael Máni Freysson.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.