Öxi þríþrautarkeppni: Krefjandi ævintýri fyrir alla

oxi2012 keppendur webÞríþrautarkeppnin Öxi verður haldin öðru sinni laugardaginn 29. júní. Keppnin skiptist upp í sund, hlaup og hjólreiðar. Dagskrá verður alla helgina í tilefni keppninnar í Djúpavogshreppi.

Keppnin hefst á 750 metra sjósundi frá Staðareyri og suður yfir Berufjörð. Þar er búningaaðstaða sem keppendur geta notað og stíga svo á reiðhjól og hjóla inn Berufjarðardal og upp á Öxi, 13 km leið.

Næst tekur við 19 km leið hlaupandi yfir í Fossárdal og að Eyjólfsstöðum þar sem aftur er farið á hjólin og hjóluð 18 km leið út á Djúpavog.

Í boði er einstaklingskeppni auk þriggja manna liðakeppni þar sem menn skipta með sér greinum. Þar að auki gefst fólki kostur á því keppa í einstökum hlutum keppninnar.

Fjallvegurinn yfir Öxi tengir saman Djúpavogshrepp og Fljótsdalshérað. Vegurinn fer hæst í um 530 metra hæð yfir sjávarmáli.

Auk þríþrautarkeppninnar, sem fyrst var haldin í fyrra, er fjölbreytt dagskrá í boði í Djúpavogshreppi um helgina fyrir alla fjölskylduna. Þar má nefna göngu á Búlandstind, gúmmískóagöngu, sandkastalakeppni, tásutölt og strandgolf.

Keppnisgjald er 3.500 krónur eða 1.500 krónur vilji menn aðeins spreyta sig á einum legg. Nánari upplýsingar um keppnina er hægt að fá á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.á Djupivogur.is og á Facebook.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.