Ólympíufari á meðal keppanda á Strandamanninum sterka

hreinn halldorsson 0018 webÓðinn Björn Þorsteinsson, kúluvarpari, er meðal keppenda á Strandamanninum sterka, nýju frjálsíþróttamóti sem haldið verður á Vilhjálmsvelli um helgina.

Óðinn Björn er einn af fjórum Íslendingum sem varpað hafa kúlu yfir tuttugu metra en hann keppt á Ólympíuleikunum í Lundúnum fyrir tveimur árum.

Einn af hinum fjórum er hins vegar mótshaldarinn Hreinn Halldórsson sem var þekktur sem Strandamaðurinn sterki meðan hann keppti. Hreinn stendur fyrri mótinu í samvinnu við UÍA en hann stefnir á að byggja upp frjálsíþróttamót á Egilsstöðum með þekktum keppendum í framtíðinni.

Af öðrum þekktum kösturum sem mæta til leiks um helgina er Guðmundur Sverrisson sem á yfir 80 metra í spjótkasti. Þjálfari hans er Austfirðingurinn Einar Vilhjálmsson sem á Íslandsmetið í greininni, 86,80 metra frá árinu 1992.

Á mótinu verður að auki keppt í kringlukasti, 200 og 400 metra hlaupi, langstökki og þrístökki. Mótið hefst klukkan 14:00 á laugardag, en ekki 16:00 eins og missagt var í Austurglugganum. Því verður framhaldið klukkan 13:00 á sunnudag.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar