Íþróttir helgarinnar: Höttur tekur á móti Fjölni og bikarkeppni í blaki

karfa hottur breidablik jan14 0026 webHöttur tekur á móti Fjölni í fyrstu deild karla í körfuknattleik í kvöld en liðin eru jöfn að stigum í þriðja sæti deildarinnar fyrir leikinn. Blaklið Þróttar halda norður á Akureyri þar sem þau freista þess að tryggja sér sæti í úrslitakeppni bikarkeppninnar í blaki.

Leikur Hattar og Fjölnis hefst klukkan 18:30 í íþróttahúsinu á Egilsstöðum í kvöld. Liðin deila þriðja sætinu með sjö sigra hvort fyrir leikinn. Sætið skiptir máli því það gefur heimaleikjarétt í undanúrslitunum í vor.

Höttur fór með sigur af hólmi þegar liðin mættust í haust, 83-90, í miklum baráttuleik og var það fyrsti sigur Hattar á tímabilinu. Liðið hefur unnið síðustu tvo leiki sína sem voru báðir gríðarlega spennandi.

Bæði meistaraflokkslið Þróttar taka þátt í annarri umferð bikarkeppninnar í blaki sem fram fer á Akureyri um helgina.

Kvennaliðið byrjar á Stjörnunni klukkan 20:00 í kvöld en mætir síðan KA klukkan 11:00 í fyrramálið og loks Þrótti klukkan 13:00 á morgun.

Karlaliðið leikur við KA klukkan 12:00 á morgun og aftur við Þrótt Reykjavík klukkan 14:00. Tvö sæti eru laus í undanúrslitum bikarkeppninnar hjá hvoru kyni.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.