Æði veglegur jóladagur á Borgarfirði eystri framundan
Jóladagurinn á Borgarfirði eystri fer fram á laugardaginn kemur og verður óvenju veglegur að þessu sinni. Allar verslanir og þjónustuaðilar í bænum hafa opið og mikill fjöldi viðburða frá morgni til kvölds.
Raular jólalög á göngunni í snjónum
Einar Skúlason hóf í gærmorgunn göngu sína frá Seyðisfirði til Akureyrar eftir gömlum þjóðleiðum. Honum sóttist ferðin ágætlega þótt nýfallinn snjórinn væri oft erfiður yfirferðar. Einar segist njóta náttúrufegurðar og söngla jólalög til að stytta sér stundir á leiðinni.Byggja upp fuglaskoðunarhús á Norðausturlandi
Félagasamtökin Fuglastígur á Norðausturlandi hefur síðustu sumur staðið fyrir uppsetningu sex fuglaskoðunarhúsa á svæðinu. Meðal þeirra eru hús við Nýpslón á Vopnafirði.Landpósturinn byrjar að bera út bréfin
Einar Skúlason, sem nú fetar eftir gömlum leiðum landpóstanna frá Seyðisfirði yfir um fjöll til Akureyrar, hefur lagt að baki um fjórðung leiðarinnar með að hafa gengið yfir 30 km í gær. Til að halda í hefðina er hann með jólakort í bakpokanum og mun koma því fyrsta til skila í dag.Föndra ýmsar jólavörur til að styrkja ungmennafélagið á Djúpavogi
Máluð jólakort, handgert súkkulaði, jóla- og kertaskreytingar. Aðeins þrennt af því sem ungmennin í unglingaráði Neista á Djúpavogi hyggjast bjóða til sölu á sínum eigin bás á jólabasar kvenfélagsins Vöku sem haldinn verður í Löngubúð á morgun.
Bjart framundan hjá Björt verslun í Neskaupstað
Ekki of oft sem nýjar verslanir taka til starfa á Austurlandi en það gerðist þó með þokkalegu pompi og prakt í Neskaupstað í byrjun mánaðarins þegar Birta Sæmundsdóttir lét gamlan draum rætast og opnaði þar verslunina Björt.