Skip to main content

Vegna ráðstefnu um Vatnajökulsþjóðgarð

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 26. jan 2009 14:47Uppfært 08. jan 2016 19:19

Vefsíðunni hafa borist svofelld skilaboð vegna aðsendrar greinar Helga Hallgrímssonar náttúrufræðings um Vatnajökulsráðstefnu sem haldin var á Egilsstöðum síðastliðinn föstudag: ,,Ráðstefnan var ekki haldin á vegum Vatnajökulsþjóðgarðs. Vínveitingar í lok ráðstefnunnar voru ekki í boði Vatnajökulsþjóðgarðs. Kveðja, Þórður H. Ólafsson, framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs."

(Frá ritstjóra vefsins:  Að umræddri ráðstefnu stóðu Vatnajökulsþjóðgarður, Þróunarfélag Austurlands, Markaðsstofa Austurlands, Vaxtarsamningur Austurlands, Fljótsdalshérað og Sveitarfélagið Hornafjörður. Þessir aðilar hafa allir merki sín undir auglýsingu um ráðstefnuna. Að sögn Eiríks Bj. Björgvinssonar, bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs fól svonefnt Austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs þjóðgarðsverði Austursvæðis og Þróunarfélagi Austurlands að halda utan um framkvæmd ráðstefnunnar.

Vínveitingar í lok hennar voru í boði Landsvirkjunar.

Eiríkur sagði í samtali mjög fýsilegt að halda sérstaka ráðstefnu sem tæki á náttúruvernd í þjóðgarðinum. Ráðstefnan síðastliðinn föstudag hafi meira verið miðuð út frá tækifærum í ferðaþjónustunni í tengslum við hinn nýja þjóðgarð. Sambærileg ráðstefna/kynning hafi verið haldin á Höfn síðastliðið haust.)