Skreyttur hnífur fannst við uppgröft
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 30. nóv 1999 00:00 • Uppfært 08. jan 2016 19:20
Haganlega skreyttur hnífur kom í ljós við fornleifauppgröft á Skriðuklaustri í seinustu viku. Hann kann að sýna mynd af erkiengli.
Hnífurinn kom upp í seinustu viku en skreytingin sást við forvörslu í byrjun vikunnar. Hann er alls um tíu sentímetrar á lengd, skaftið úr látinu sjö sm. en blaðið sjálft, sem er brotið og úr járni, þrír sm.. Skautið sýnir manneskju með kórónu og staf. Dr. Steinunn Kristjánsdóttir, sem stýrir uppgreftrinum, segir mögulegt að hún sýni einn erkienglanna átta eða Ólaf Helga Noregskonung. Skreytingin er skýr á annarri hliðinni en erfiðra að greina hana á hinni. Steinunn segir hnífinn annað hvort hafa verið rakhníf, eða bíld, skurðarhnífur notaður til að taka blóð. Hnífurinn er frá 15. eða 16. öld. Hann fannst í herbergi sem líklega hefur verið sjúkrastofa.