Læknir leystur tímabundið frá störfum
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 12. feb 2009 17:51 • Uppfært 08. jan 2016 19:19
,,Hannes Sigmarsson, yfirlæknir við Heilsugæslu Fjarðabyggðar, hefur í dag verið leystur, tímabundið, frá starfsskyldum sínum við Heilbrigðisstofnun Austurlands, HSA, vegna rannsóknar á reikningum frá honum."
Þetta segir í fréttatilkynningu frá Einari Rafni Haraldssyni, framkvæmdastjóra HSA. Hannes er einn fjögurra lækna sem starfað hafa við Heilsugæslu Fjarðabyggðar.
Mál Hannesar hefur verið til skoðunar hjá HSA nokkra hríð og snýr einkum að vinnulagi og kostnaði sem mun hafa verið mjög á skjön við það sem tíðkast annars staðar innan HSA. Er þar einum um að ræða vinnu læknisins utan dagvinnutíma. Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar og aðfinnslur mun Hannes ekki hafa breytt vinnulagi sínu og því var fenginn utanaðikomandi og óháður aðili, frá Landlæknisembættinu, lögmaður og endurskoðandi til að fara yfir málið. Öll gögn er varða vinnu hans hafa verið færð á skrifstofu HSA á Egilsstöðum til frekari athugunar. Hannes hefur verið læknir hjá Heilsugæslu Fjarðabyggðar í hartnær áratug.