Féll niður á stétt
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 02. ágú 2008 23:04 • Uppfært 08. jan 2016 19:18
Maður slasaðist í Fellum í kvöld þegar hann féll af palli við hús og niður á stétt.
Hann fékk gat á höfuðið og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað. Í gær voru lögregla og slökkvilið kölluð að Shell skálanum á Egilsstöðum þar sem logaði í ruslagámi. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins. Helgin hefur annars verið róleg hjá lögreglunni í umdæmi sýslumannsins á Seyðisfirði.