Skip to main content

BT gjaldþrota

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 03. nóv 2008 22:53Uppfært 08. jan 2016 19:19

Það lítur út fyrir að BT á Egilsstöðum verði ekki upp á marga fiska í nánustu framtíð því óskað var eftir gjaldþrotaskiptum á BT verslunum ehf. í dag. Stjórnendur fyrirtækisins vona að hægt verði að koma BT aftur í rekstur. Ljóst virðist þó að verslanir fyrirtækisins verða lokaðar í það minnsta næstu dagana. Hjá félaginu starfa 50 manns.btmsin.jpg

Í tilkynningu frá BT segir:

„Á undanförnum dögum og vikum hefur verið róið að því öllum árum að tryggja áframhaldandi rekstur BT í óbreyttri mynd en án árangurs. Óskað var eftir gjaldþrotaskiptum í dag, mánudag. Vonir standa til að hægt sé að koma BT aftur í rekstur og hafa viðræður verið í gangi um slíkt. Fyrir liggur undirritað kauptilboð í rekstur BT verslana sem þó er háð samþykki skiptastjóra. Ljóst er að verslanir BT verða lokaðar enn um sinn meðan niðurstaða fæst í fyrirliggjandi kauptilboð.

Hjá BT starfa um 50 starfsmenn í 30 stöðugildum. Starfsmannafundur var haldinn í kvöld og þar fengu starfsmenn upplýsingar um stöðuna ásamt aðstoð við að tryggja réttindi sín.“