Sjávarútvegsskóli Austurlands fyrir ungmenni á sex stöðum í sumar
Sjávarútvegsskóli Austurlands verður starfræktur á sex stöðum í sumar, fyrir ungmenni fædd árið 2001.Sumarið 2013 hóf Síldarvinnslan að starfrækja Sjávarútvegsskóla Síldarvinnslunnar. Skólastarfið stóð yfir í tvær vikur og fengu nemendur greidd námslaun, sambærilegum þeim sem eru í Vinnuskóla Fjarðabyggðar.
Mikill áhugi reyndist vera á skólastarfinu, en áhersla var lögð á að fræða ungmennin um sögu sjávarútvegs og fiskvinnslu, gæða- og markaðsmál, starfsmannamál og menntun starfsfólks í sjávarútvegi og tengdum greinum. Þá var farið í vettvangsheimsóknir um borð í skip, fiskvinnslufyrirtæki og til fyrirtækja sem þjónusta sjávarútveginn.
Starfsemi Sjávarútvegsskóla Síldarvinnslunnar vakti athygli og önnur fyrirtæki í Fjarðabyggð sýndu því áhuga að taka þátt í skólastarfinu. Niðurstaðan varð sú að Sjávarútvegsskóli Fjarðabyggðar tók til starfa í fyrra og auk sjávarútvegsfyrirtækjanna Eskju og Loðnuvinnslunnar komu Vinnuskóli Fjarðabyggðar og Austurbrú til liðs við Síldarvinnsluna. Efnt var til skólahalds í allri Fjarðabyggð fyrir nemendur sem fæddir voru árið 2000 og var kennt á þremur stöðum í sveitarfélaginu.
Í ár mun skólinn enn færa út kvíarnar og verður starfssvæði hans allt Austurland, eða svæðið frá Vopnafirði til Hornafjarðar. Auk sveitarfélaga við sjávarsíðuna mun Fljótsdalshérað taka fullan þátt í skólahaldinu. Í samræmi við þetta hefur nafni skólans verið breytt og ber hann nú heitið Sjávarútvegsskóli Austurlands.
Síldarvinnslan hlaut viðurkenningu Samtaka atvinnulífsins sem menntasproti ársins í febrúar á þessu ári fyrir frumkvæði sitt við að koma Sjávarútvegsskólanum á fót.
Lítil áhersla á þessa undirstöðuatvinnugrein
Sylvía Kolbrá Hákonardóttir er önnur tveggja þeirra sem er í forsvari fyrir skólann. „Meginástæða þess að við fórum af stað með þetta er sú að skólakerfið leggur litla áherslu á fræðslu um þessa undirstöðuatvinnugrein. Einnig hefur verið bent á að í sjávarplássum nútímans er hægt að alast upp án þess að sjá nokkurn tímann fisk.
Áður fyrr var öll starfsemi tengd sjávarútvegi nálægt fólki; afla var landað á hverri bryggju, beitt í fjölda skúra og vinnsla á fiski fór jafnvel fram undir beru lofti. Nú er öldin önnur; veiðiskipin eru stærri og færri en áður, aflanum landað á lokuðum hafnarsvæðum og vinnslan fer fram innanhúss þar sem farið er eftir ströngum reglum um hreinlæti og gæði."
Fyrir ungmenni fædd árið 2001
Ungmenni fædd 2001 gefst kostur á að sækja um Sjávarútvegsskólann, en ráðgert er að kenna á sex stöðum – í Neskaupstað, á Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Vopnafirði, Höfn og Seyðisfirði. Nemendum frá þeim byggðarlögum, sem ekki verður kennt í, verður ekið til og frá kennslustað.
Kennslustaðir og dagsetningar verða eftirfarandi:
- Neskaupstaður dagana 8 - 12. júní
- Eskifjörður dagana 22 - 26. júní
- Fáskrúðsfjörður dagana 6 - 10. júlí
- Seyðisfjörður dagana 20 - 24. júlí
- Vopnafjörður dagana 27 - 31. Júlí
- Höfn – auglýst síðar