Unglingalandsmót UMFÍ 2025 sett á Egilsstöðum – Myndir
Íþróttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 02. ágú 2025 11:08 • Uppfært 02. ágú 2025 11:12
Unglingalandsmót UMFÍ árið 2025 var sett á Egilsstöðum í gær. Tæplega 1100 þátttakendur eru skráðir til keppni í yfir 20 íþróttagreinum.
Dagskrá mótsins byrjaði á fimmtudag og stendur til sunnudags. Full keppnisdagskrá hófst í gærmorgun en mótið var formlega sett á Vilhjálmsvelli í gærkvöldi. Fulltrúar sambandsaðila UMFÍ gengu þar inn á völlinn, líkt og á Ólympíuleikum.
UÍA, UMFÍ og Múlaþing eru gestgjafar mótsins. UÍA á langfjölmennasta keppendahópinn, ríflega 330 af alls tæplega 1100 þátttakendum. Til viðbótar við keppnisdagskrána er í boði ýmis afþreyingardagskrá sem er opin allri fjölskyldunni og öllum Austfirðingum.
Ávörp í gærkvöldi fluttu Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, og Benedikt Jónsson, formaður UÍA. Ína Berglind Guðmundsdóttir og Jóna Þyrí sáu um tónlistaratriði.
Hákon Gunnarsson var aðalfánaberi athafnarinnar. Jódís Lilja Skúladóttir flutti ávarp fyrir hönd keppenda og þau Elínborg Björgvinsdóttir og Patrekur Bóas Antonsson kveiktu landsmótseldinn.
Keppni verður haldið áfram í dag. Meðal dagskrárliða eru kökuskreytingar sem eru í íþróttahúsinu á Egilsstöðum frá klukkan 17-20. Það er ein fjölmennasta grein mótsins með tæplega 500 keppendur.
[widgetkit id="375" name="20250801: Unglingalandsmót setning"]