Oddskarðsmót Skíðafélags Fjarðabyggðar
Íþróttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 16. apr 2010 10:33 • Uppfært 08. jan 2016 19:21
Oddskarðsmót Skíðafélags Fjarðabyggðar verður haldið á skíðasvæðinu við Skíðamiðstöð Austurlands í Oddskarði á sunnudaginn 18. apríl næstkomandi.
Keppendur á mótinu keppa í tveimur flokkum, 10 ára og yngri og 11 ára og eldri. Mótið hefst klukkan 9:00 á sunnudagsmorguninn með númeraafhendingu 11 ára og eldri. Númeraafhending í yngri flokknum 10 ára og yngri hefst klukkan 11:30.
Nánari upplýsingar um mótið er að finna á HEIMASÍÐU Skíðafélags Fjarðabyggðar.