Skip to main content

Gengið á Grænafell á Degi íslenskrar náttúru

ÍþróttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 15. sep 2011 11:22Uppfært 08. jan 2016 19:22

uia_ganga.jpgUÍA, sveitarfélögin Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað og Náttúrustofa Austurlands efna til fjölskyldugöngu á Grænfell á morgun í tilefni Dags íslenskrar náttúru. Fjallið var valið sem framlag UÍA í gönguverkefni Ungmennafélags Íslands, Fjölskyldan á fjallið, í ár. Gengið verður upp beggja vegna fjallsins og hittast hóparnir á toppnum.

 

Reyðafjarðarfjarðarmegin verður farið frá Grænafellsvelli kl 17:00 og vísar Þóroddur Helgason veginn. Héraðsmegin geta gönguhrólfar valið um tvo kosti. Annars vegar að leggja af stað frá sæluhúsinu á Fagradal kl 16:15 eða slást í hópinn við bílastæðið við Fagradalsá kl 17:00. Guðrún Sóley Guðmundsdóttir sér til þess að sá hópur rati rétta leið á toppinn.

Hóparnir hittast á toppnum, gæða sér á nesti, bregða á leik með góðum gesti, jafnvel taka lagið og rita nöfn sín í gestabók sem trónir á toppi fellsins. Skarphéðinn Þórisson sérfræðingur á Náttúrustofu Austurlands mun fræða göngufólk um það sem fyrir augu ber.

Gangan er ætluð öllum og verður hraðinn miðaður við það, auðveldast er að ganga frá bílastæðinu við Fagradalsá en leiðin frá Grænafellsvelli er ögn brattari, en þó auðgeng. Áætlað er að gangan á toppinn taki um ein og hálfa klukkustund. Þátttakendur eru hvattir til að klæða sig skynsamlega og taka með sér nestisbita.