Skip to main content

Fimleikar: Góður árangur Hattar á fyrsta móti vetrarins

ÍþróttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 02. nóv 2011 22:34Uppfært 08. jan 2016 19:22

fimleikahopur_hattar_31102011_0005_web.jpgTæplega fjörutíu krakka hópur fór á vegum fimleikadeildar Hattar vestur á Akranes um seinustu helgi til að keppa á fyrsta fimleika vetrarins. Árangurinn var frábær. Ferðin var einnig notuð til æfinga.

 

Höttur sendi 36 manna hóp í fjórum liðum til keppni á mótinu um helgina. Best gekk í fjórða flokki drengja, 12-14 ára, þar sem liðið varð í efsta sæti. Stúlknaliðið í sama flokki varð í þriðja sæti og liðið í opnum flokki, 16 ára og eldri, í öðru sæti. Sama sæti náði drengjaliðið í flokki 9-12 ára.

Ferðin stóð frá föstudegi til mánudags en seinasti dagurinn var notaður í æfingar í fimleikahúsi Stjörnunnar með þjálfurum Garðabæjarliðsins.

„Æfingaaðstaðan hjá  Stjörnunni er sú besta á landinu og því dýrmætt fyrir iðkendur  fimleikadeildar Hattar að nýta keppnisferðir til að komast í góða aðstöðu,“ segir Auður Vala Gunnarsdóttir, yfirþjálfari Hattar. „ Margir iðkendanna voru að framkvæma ný stökk og tengja  saman erfið stökk á áhöldum sem eru með öryggisbúnað sem er ekki til  staðar á Egilsstöðum.“