Erna kláraði báðar ferðar
Íþróttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 15. mar 2010 00:12 • Uppfært 08. jan 2016 19:21
Erna Friðriksdóttir, skíðakona úr Fellabæ, kláraði báðar ferðarnar í svigi kvenna á vetrarólympíuleikum fatlaðra sem fram fara í Vancouver í Kanada. Erna er fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt í alpagreinum á vetrarólympíuleikum fatlaðra.
Tími Ernu í fyrri ferðinni var 2:04,05 mínútur og var hún í fjórtánda sæti eftir hana. Tími hennar í seinni ferðinni var 2:40,74 mínútur og samanlagður tími 4:44,79 en Erna endaði í ellefta sæti. Erna var 2:32,74 mínútum á eftir sigurvegaranum, Claudio Loesch frá Austurríki.
Sautján keppendur mættu til leiks en sex féllu úr leik. Erna keppir næst í stórsvigi á þriðjudag.