Deildir Hattar mætast til styrktar Rauða krossinum
Íþróttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 26. des 2011 13:15 • Uppfært 08. jan 2016 19:22
Körfuknattleiks- og knattspyrnudeildir Hattar mætast á miðvikudag í góðgerðarleik til styrktar Rauða krossinum. Fleiri deildir félagsins taka þátt í viðburðinum.
Liðin munu leika innanhússknattspyrnu af gamla taginu í 2 x 10 mínútur
þar sem hvert mark mun telja sem 10 stig, en seinni hálfleikurinn verður
síðan 2 x 10 mínútur af hefðbundnum körfuknattleik.
Fimleika- og frjálsíþróttadeildir munu sjá um skemmtiatriði í leikhléum og von er á nokkrum verulega spennandi leynigestum í leikinn.
Aðgangseyrir er kr. 1000 fyrir eldri en 16 ára en kr. 500 fyrir 16 ára og yngri, en einstaklingar og fyrirtæki eru hvött til að styrkja átakið með frjálsum framlögum. Allur aðgangseyrir rennur beint til Héraðsdeildar Rauða Krossins og þess göfuga starfs sem þau samtök vinna á Héraði, meðal annars við fjölskylduhjálp.
Þessi spennandi viðureign fer fram í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum, miðvikudaginn 28. desember og hefst hún kl. 18:30.
Hugmyndin er fengin frá Keflvíkingum sem staðið hafa fyrir slíkum leikjum í nokkur ár.