Tveir Íslandsmeistaratitlar í fimleikum austur
Íþróttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 17. feb 2012 18:10 • Uppfært 29. nóv 2012 18:10
Tvö lið frá Hetti hömpuðu Íslandsmeistaratitlum á Selfossi um síðustu helgi þar sem fram fór Íslandsmót unglinga í hópfimleikum í 1. deild.
Þetta er stærsta mót vetrararins en 52 lið í ýmsum aldursflokkum mættu til leiks. Sigurliðin frá Hetti komu úr fimmta flokki drengja (9-12 ára) og fjórða flokki drengja/blönduðum flokki (12-14 ára).
Alls átti Höttur 54 keppendur í sex liðum.