Viðræður ganga vel í Fjarðabyggð
Viðræður Framsóknarflokks og Fjarðalista um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Fjarðabyggðar ganga vel að sögn oddvita Framsóknarflokks. Á Vopnafirði eru engar viðræður hafnar enn.„Við hófum viðræður í gær, erum á fundum í dag og gerum ráð fyrir að funda áfram næstu daga. Við erum að vinna í málefnasamningi og ýmsum útfærslum,“ segir Jón Björn Hákonarson, oddviti Framsóknarflokksins. Hann var staddur á viðræðufundi þegar Austurfrétt náði í hann.
Fjarðalistinn er með fjóra fulltrúa í bæjarstjórninni og gat valið úr þremur framboðum til að mynda meirihluta með. Eftir að hafa fundað með hinum framboðunum var ákveðið að láta reyna á viðræður við Framsóknarflokkinn.
Á Fljótsdalshéraði gerðust hlutirnir hratt í gær og virðist myndun meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðis vera formsatriði eftir að þreifingar síðarnefnda framboðsins við Héraðslista strönduðu á ágreiningi um fráveitumál. Unnið verður í málefnasamningi nýs meirihluta um helgina.
Á Vopnafirði hafa ekki verið neinar viðræður í gangi. Hvorki þar, né annars staðar á Austurlandi, eru kjörnir fulltrúar að aðalstarfi og þurfti lykilfólk frá framboðunum að sinna öðrum skyldum fyrri hluta vikunnar.
Eftir því sem Austurfrétt kemst næst er von á að hreyfing komist á málin eftir kvöldið eða um helgina. Útlit er fyrir að Betra Sigtún og Framsóknarflokkur, sem mynduðu meirihluta í byrjun desember, taki stöðuna áður en lengra verður leitað. Samfylkingin á einnig fulltrúa í sveitarstjórninni.