Varað við frostrigningu á Héraði

Vegagerðin varar ferðalanga á Fljótsdalshéraði við frostrigningu sem skapað geti flughálku á Héraði í dag.


Spáð er vaxandi austanátt á landinu í dag. Reiknað er með 13-20 m/s á Austurlandi í kvöld og nótt með slyddu eða rigningu. Hægari vindur verður úti við ströndina.

Hætta er við frostrigningu á Héraði fljótlega upp úr hádegi og fram á kvöld þar sem skóglendi hamlar oft loftskiptum í veðurfari sem þessu.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar