Upplýsingafundur fyrir Seyðfirðinga í dag

Haldinn verður upplýsingafundur fyrir Seyðfirðinga í dag mánudag kl. 17.00.

Tilgangur fundarins er að upplýsa íbúa Seyðisfjarðar um stöðu mála. Fundurinn fer fram í gegnum Facebooksíðu Múlaþings. Farið verður yfir helstu atriði sem fram koma á fundinum á ensku og pólsku. Íbúar geta sent inn spurningar fyrir fundinn á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Dagskrá
Stutt innlegg frá eftirfarandi aðilum:
Björn Ingimarsson, sveitastjóri Múlaþings
Bryndís Hlöðversdóttir, fulltrúi starfshóps ráðuneyta vegna hamfara á Seyðisfirði
Hugrún Hjálmarsdóttir, framkvæmda- og umhverfismálastjóri Múlaþings
Helga Guðmundsdóttir, fræðslustjóri Múlaþings
Ólafur Sigurðsson, fulltrúi í heimastjórn og starfsmaður almannavarnadeildar
Sérfræðingur frá Veðurstofunni
Sérfræðingur frá Eflu
Svör við spurningum
Samantekt á ensku og pólsku.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar