Tvö hross dauð eftir ákeyrslu

Tvö hross drápust þegar ekið var inn í hrossastóð á Hringveginum skammt innan við Egilsstaði miðvikudagskvöld. Kvartanir hafa borist vegna hrossa á ferli á þessum slóðum.


Tveir voru í bílnum og má telja mildi að þeir hafi sloppið án meiðsla því bíllinn er gjörónýtur. Tvö hross úr stóðinu drápust hins vegar.

Dýralæknir kom á stað ásamt lögreglunni og kemur fram í bókun lögreglunnar að viðhaldi girðinga á svæðinu sé ábótavant. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglu að mjög oft hefðu borist kvartanir út af hrossum á svæðinu.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar