Tveir fluttir með sjúkraflugi eftir árekstur á Fjarðarheiði
Tveir einstaklingar voru fluttir með sjúkraflugi eftir að tveir bílar skullu saman á Fjarðarheiði eftir hádegi í dag. Lögregluþjónn segir að snarlega hafi myndast erfiðar aðstæður á heiðinni.Slysið varð um klukkan hálf þrjú í dag en bílarnir skullu harkalega saman í hálku sem myndaðist af völdum krapa.
Þrennt var í bílunum. Ökumaður annars bílsins og farþegi úr hinum slösuðust töluvert. Þeir voru fluttir af vettvangi með sjúkrabíl og nánast rakleitt í sjúkraflug. Ekki er nánar vitað um líðan þeirra.
Hjalti B. Axelsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, segir að vegurinn yfir heiðina hafi verið auður í morgunn. Eftir hádegi tók að rigna í byggð en snjóa eða slydda til fjalla. „Aðstæður urðu hratt erfiðar,“ segir hann.
Loka þurfti veginum í stuttan tíma meðan björgunaraðilar athöfnuðu sig.
Bílarnir báðir eru mikið skemmdir og óökufærir.
Mynd úr safni.