Til Þýskalands fyrir rúmar 20.000 krónur
Þýska flugfélagið Condor hefur hafið sölu á beinu flugi milli Egilsstaða og Frankfurt næsta sumar. Flogið verður frá 16. maí til 24. október.Þetta má lesa út úr gögnum úr bókunarvél félagsins. Tilkynnt var um flugið klukkan tíu í morgun og opnað fyrir bókanir strax í kjölfarið.
Flogið verður vikulega á þriðjudögum. Fyrsta flugið verður 16. maí og hið síðasta 24. október. Flugið tekur 3 tíma og 35 mínútur.
Tímar í bókunarkerfinu eru staðartíma og verður farið í loftið frá Frankfurt klukkan 20:45 og lent hér 22:20. Flugvélin bíður á Egilsstöðum í um einn og hálfan tíma, á að fara aftur í loftið 23:55 og lenda 05:10.
Flugið hingað kostar 190 evrur, eða rúmar 26.000 krónur á gengi dagsins en út 160 evrur eða 22.200 krónur. Þegar líður á júlí og komið er fram í ágúst hækkar verðið upp í allt að 310 evrur eða 43.000 krónur aðra leið.
Er hér miðað við ódýrasta verð, inni í því er til að mynda aðeins létt handfarangurstaska, engin forfallatrygging, matur eða önnur þjónusta.
Flugvöllurinn í Frankfurt er einn stærsti flugvöllur Evrópu, þaðan fljúga um 90 flugfélög til um 300 áfangastaða. Sjálft er Condor með um 90 áfangastaði í sínu kerfi. Það er með ríflega 50 flugvélar frá bæði Boeing og Airbus.