Tíðarfar sem er ekki vinur snjómokstursreikningsins
Snjómokstursmenn á Austurlandi hafa haft í nógu að snúast undanfarna viku. Víðast hvar hefur snjóað duglega og segja má að snjókoman sé stöðug. Snjórinn er laus í sér en safnast þegar saman kemur.„Þetta gengur en er mikil vinna. Við hreinsuðum allan bæinn í gær og fyrradag en í morgun var allt meira og minna orðið hálf ófært aftur. Svona tíðarfar er ekki vinur snjómokstursreikningsins,“ segir Kári Ólason, verkstjóri hjá Fljótsdalshéraði.
Magnið nú er sérstakt í ljósi þess að jörð var nánast auð fyrir viku. Síðan hefur snjóað nánast stöðugt hvorki. Varlega má áætla að um 40 sm jafnfallinn snjór sé í þéttbýlinu á Egilsstöðum.
„Þetta er ekki svo mikið magn en það gerir él í einhverja stund nánast hvern klukkutíma við þurfum alltaf að vera að skafa. Haugarnir á snjósöfnunarsvæðunum eru orðnir vígalegir.
Þetta hefði getað verið verða ef ekki hefði hlánað í lok febrúar, þetta var eins og að byrja að haustlagi.“
Annað sem hjálpar er að vindur hefur verið hægur og nánast snjóað í logni. Snjórinn er því laus í sér. Hætt er við að allt yrði blindað og síðan kolófært ef storm gerði.
Utan þéttbýlisins segir Kári töluverðan snjó í Skriðdal og mjöll yfir öllu Úthéraði. Á Efra-Jökuldal er hins vegar mikið til autt.
„Við mokuðum heimreiðar í gær, það er ekki meira í sveitunum en þorpi. Alls staðar er snjór en hvergi nein fyrirstaða.“