Þröstur: Lítum á þetta sem varnarsigur

Þröstur Jónsson oddviti Miðflokksins  í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi segir að hann líti á niðurstöður kosninganna um síðustu helgi sem ákveðinn varnarsigur.

„Það má segja að við höfum goldið fyrir það hve kjörsóknin var léleg á Héraði,“ segir Þröstur. „Þar höfðum við boðið okkur fram áður og höfðum grunn til að byggja á.“

Ennfremur segir Þröstur að flokkurinn hafi ekki áður boðið fram niður á fjörðum og því sótt fylgi sitt að mestu á Héraði.

„Í ljósi þess tel ég að úrslit kosninganna séu ákveðinn varnar- eða áfangasigur fyrir okkur,“ segir hann.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar