Þrír Austfirðingar á EM í bogfimi
Þrír Austfirðingar verða meðal þeirra 21 sem keppa fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu innandyra í bogfimi sem haldið verður í Slóveníu. Þetta er stærsti hópur sem Ísland hefur sent á Evrópumót.Haraldur Gústafsson keppir í sveigboga karla, bæði einstaklinga og liða. Guðný Gréta Eyþórsdóttir í einstaklingskeppni kvenna með sveigboga en Daníel H. Baldursson í trissuboga karla, yngri en 21, bæði liða og einstaklings. Þau koma öll úr Skotíþróttafélagi Austurlands (SKAUST).
Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í Evrópumóti innandyra. Nokkrar ástæður eru fyrir fjölda Íslendinganna. Í fyrsta lagi eru fleiri flokkar með boga auk þess sem bæði ungmenni og fullorðnir taka þátt í mótinu.
Fimmtíu þjóðir eiga rétt á þátttöku á mótinu. Að lokinni undankeppni komast efstu 32 einstaklingarnir í hverjum flokki í úrslit.
Mótið verður í Laško í Slóveníu 13. – 20. febrúar.