Tafir á umferð yfir Fagradal vegna þáttagerðar

Tímabundnar lokanir verða á umferð yfir Fagradal frá klukkan 9:00-21:00 í dag þar sem tökur fara fram á þáttunum Fortitude.


Þetta er gert til að draga úr hljóðmengun á meðan tökuvélarnar eru í gangi.

Í tilkynningu frá tökuliðinu segir að reynt verði eftir fremsta megni að draga úr öllum töfum á umferð á meðan á þessu standi. Umferðinni verður stýrt í gegnum umrætt svæði og vonum við að ökumenn sýni tillit og gæti varúðar.

Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem þetta kann að valda.

Síðar í dag verða einnig tökur við hlíðar Grænafells. Sökum þess verða tímabundnar vegalokanir á veginum að gönguleiðum Grænafells.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.