Staðurinn ætlaður til útiveru og náttúruskoðunar

Framkvæmdir vegna áningarstaðar við Helgustaðarnámu við Eskifjörð hafa staðið yfir að undanförnu og sóst vel og gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í byrjun október.


Helgustaðanáma og svæðið umhverfis hana hefur verið friðlýst sem náttúruvætti en í því felst meðal annars að staðurinn er ætlaður til almennrar útiveru og náttúruskoðunar.

Silfurberg gegndi mikilvægu hlutverki í náttúruvísindalegum rannsóknum 18. og 19. aldar og lagði með því grunninn að margvíslegum tækniframförum 20. aldarinnar. Bergið úr Helgustaðarnámu var sérlega tært og var eftir því eftirsótt.

Yfirstandandi framkvæmdirnar hafa þann tvíþætta tilgang að verja svæðið gegn ágangi og að auðvelda ferðamönnum að sækja staðinn heim.

Steinlögð aðkomustétt, göngustígar, trépallar og salernisaðstaða er á meðal þeirra verkefna sem unnið er að. Einnig verða settar upp varnagirðingar við námu og námuop, upplýsingaskillti og áningaraðstaða fyrir gesti með borðum og stólum ásamt bílastæðum, auk þess sem hlaðinn steinveggur mun prýða ásýnd staðarins.

Framkvæmdin er styrkt að helmingshluta af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Um hönnun mannvirkja og landslagsmótun sá Landmótun.

Ljósmynd: Sigurður Jóhannes Jónsson

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.