„Skil ekkert hvað rjúpnafræðingarnir eru að fara“

Rjúpnaveiðimenn á Austurlandi segja nóg hafa verið af rjúpu á svæðinu í haust, þvert á það sem náttúrufræðingar töldu þegar veiðitímabilið hófst.

„Það er nánast sama í hverjum maður heyrir, alls staðar gekk veiðin mjög vel og það sama á við um veiðina hér á austfirsku fjörðunum. Ég met það svo að stofninn sé með þeim sterkari síðustu árin því hvarvetna komust menn í góða hópa af rjúpu og veiddu vel.

Ég satt best að segja veit ekki hvort þessir rjúpnafræðingar eru færir um að telja því það er enginn að verða þess var að rjúpan eigi erfitt uppdráttar. Þvert á móti eiginlega. Vorið hér fyrir austan var mjög gott fyrir fuglana og mig grunar að fræðingarnir einfaldlega átti sig ekki á að ungarnir eru fljótir að stækka þegar svo er.

Ég ók sjálfur fram á rjúpnahóp snemma sumars sem greinilega var mamma með ungana, nema þeir voru orðnir álíka stórir og hún sjálf,“ segir Heimir Snær Gylfason í Neskaupstað.

Hann náði ekki að ganga jafn mikið til rjúpna í haust eins og undanfarin ár en var í sambandi við marga veiðimenn. Hann segir marga hafa veitt vel og stundum vel umfram ráðleggingar Umhverfisstofnunar um 5-7 fugla á mann, enda krökkt af rjúpu.

„Það munar svo miklu á þessu kerfi nú þar sem veiða má alla daga í ákveðinn tíma. Það þýðir að menn eru ekki lengur að rembast við að fara út til veiða í hvaða veðri sem er og láta svo hugsanlega björgunarsveitir þurfa að hefja leit í skítaveðri. Nú bíða menn rólegir eftir þægilegu veðri og aðstæðum og þetta gengur miklu betur svona. Þess utan jafnast fátt á við útiveru í náttúrunni í fallegu veðri sem rjúpnaveiðin er svona í og með.“

Lengri útgáfa birtist í Austurglugganum. Hægt er að panta áskrift hér.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.