Samherji mun selja af sínum hlut í Síldarvinnslunni
Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir að það liggi ljóst fyrir að Samherji mun selja eitthvað af sínum bréfum í Síldarvinnslunni en hversu stóran hlut liggur ekki fyrir á þessum tímapunkti. Það sé ekki unnið út frá því að hlutafé verði aukið.Þetta kemur fram í opnuviðtali við Þorstein Má í Markaðinum, fylgiblaði Fréttablaðsins í dag. Þar segir Þorsteinn einnig að ekki hafi verið rætt til hlítar innan hluthafahópsins hverjir munu selja sig niður í væntanlegu útboði.
„Sú umræða hefur ekki farið fram að fullu leyti innan fyrirtækisins. Kynningar vegna sölunnar eru að fara af stað núna á næstunni. Landsbankinn stýrir þessu ferli og þeir ætla að upplýsa lífeyrissjóði og aðra um stöðu mála á næstu vikum. Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort allir hluthafar selji sig jafnt niður, þar tekur hver og einn hluthafi ákvörðun um það.“ segir Þorsteinn í viðtalinu.
Fram kemur að Samherji er stærsti eigandi Síldarvinnslunnar með tæplega 45 prósenta hlut. Næststærsti hluthafinn er eignarhaldsfélagið Kjálkanes með ríflega 34 prósenta hlut. Kjálkanes er í eigu einstaklinga sem einnig eiga útgerðina Gjögur sem er með höfuðstöðvar sínar á Grenivík í Eyjafirði. Þriðji stærsti hluthafinn er svo Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað sem hefur verið veigamikill hluti af í samfélaginu þar fyrir austan í áratugi.
Eins og kunnugt er af fréttum er fyrirhugað að skrá Síldarvinnsluna í Kauphöllina á fyrrihluta þessa árs. Í viðtalinu kemur fram að rætt hafi verið um að verðmæti félagsins liggi á bilinu 90 til 100 milljarðar kr. Þorsteinn vill ekki velta fyrir sér hver sé hugsanlegur verðmiði á félaginu í útboðinu sem er framundan.
„Bankamennirnir sjá um það. Ég velti mér ekki mikið upp úr því hver verðmiðinn er á þeim fyrirtækjum sem ég kem að. Ég hugsa þetta ekki á þennan hátt. Ég hef fyrst og fremst áhuga á því að fyrirtækin fjárfesti í eigin rekstri þannig að skip, vinnslur, tækni og búnaður séu í fremstu röð hverju sinni til þess að geta mætt síbreytilegum kröfum viðskiptavina sinna.“ segir Þorsteinn.