Rýmingu aflétt á Seyðisfirði, einnig á Fossgötu
Lögreglustjórinn á Austurlandi, í samráði við Veðurstofu Íslands og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, hefur ákveðið að aflétta rýmingu á þeim svæðum sem rýmd voru í varúðarskyni síðastliðið föstudagskvöld. Íbúar á þeim svæðum geta því haldið til síns heima.Þetta kemur fram í tilkynningu. Um eftirtalin hús er að ræða:
Öll hús við Botnahlíð
Múlavegur 37
Baugsvegur 5
Austurvegur 36, 38b, 40b, 42, 44, 44b, 46, 46b, 48, 50, 52, 54 og 56.
Engin hreyfing hefur mælst á hlíðinni ofan Seyðisfjarðar þrátt fyrir rigningu frá föstudagskvöldi fram til seinnipart laugardags í gær og ekki hefur orðið vart við óstöðugleika. Vatnshæð í borholum hefur ekki hækkað umtalsvert. Því er talið óhætt að aflétta rýmingu.
Rýmingu er einnig aflétt af öllum húsum við Fossgötu. Hús þar hafa verið rýmd frá því í vikunni fyrir jól þegar stóra skriðan féll. Farvegur Búðarár hefur síðan verið dýpkaður og lagfærður. Í ljósi þess sem og þess stöðugleika sem hefur sýnt sig í hlíðum þykja ekki efni til að viðhalda rýmingu á Fossgötu.
Mynd: Lögreglan á Austurlandi.