Rýming húsa í sólarhring í viðbót á Seyðisfirði

Gera má ráð fyrir að rýming standi í sólarhring til viðbótar að minnsta kosti á Seyðisfirði, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.


Hættuástand er enn á rýmingarsvæði á Seyðisfirði og umferð þar óheimil sem stendur. Beðið er birtingar til að meta ástand og gera ráðstafanir til að tryggja öryggi.

Dregið hefur lítillega úr úrkomu og standa vonir því til að ástandið fari skánandi úr þessu. Versni staðan hinsvegar er áætlun um frekari rýmingar eða útvíkkun á varúðarsvæðum. Íbúar eru beðnir um að gæta fyllstu varúðar sem fyrr.

Næstu tilkynningar er að vænta um hádegi.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar