Olís opnar hraðhleðslustöð á Reyðarfirði
Olís hefur tekið í notkun hraðhleðslustöð við afgreiðslu sína á Reyðarfirði. Þetta er fjórða stöðin sem fyrirtækið rekur. Fyrir eru stöðvar í Álfheimum í Reykjavík, Höfn í Hornafirði og Siglufirði.„Það er ánægjulegt að opna nýja hraðhleðslustöð á Reyðarfirði sem er mikilvæg stöð fyrir okkur. Með henni komum við til móts við rafbílaeigendur á Reyðarfirði og nágrenni og fleiri sem munu ferðast á rafbílum um Austurland,“ er haft eftir Jóni Ólafi Halldórssyni, forstjóra Olís, í tilkynningu.
„Fjölgun hraðhleðslustöðva er liður í aukinni þjónustu fyrir okkar viðskiptavini. Rafbílum fer ört fjölgandi og við viljum að sjálfsögðu fylgja rafbílaþróuninni eftir og geta boðið rafbílaeigendum að hlaða bíla sína á þjónustustöðvum Olís
Við bjóðum upp á hraðvirkar og notendavænar hraðhleðslustöðvar þar sem aðgengi er þægilegt og snyrtilegt. Olís hefur um árabil unnið skipulega að umhverfismálum og fjölgun hraðhleðslustöðva er hluti af Grænum skrefum Olís.“
Í tilkynningunni kemur fram að tímagjaldið á hraðhleðslustöðvum Olís (50 kW) er nú 45 kr. kWst. Mínútugjaldið byrjar að telja eftir 30 mínútur frá upphafi hleðslu og er þá 10 kr./mín. Tímagjaldið á hæghleðslustöðvum Olís (22kW) er nú 23 kr. kWst og mínútugjaldið er 1 kr./mín. eftir fyrstu 30 mínúturnar. Mínútugjaldið byrjar því ekki að telja fyrstu 30 mínúturnar í hleðslu bæði á hrað- og hæghleðslustöðvum Olís.
Örn Franzson, Jón Ólafur Halldórsson, Sigurður Ástgeirsson og Jón Árni Ólafsson við hraðhleðslustöð Olís. Mynd: Olís