Óbreytt staða á Austurlandi

Engin breyting er á fjölda þeirra sem eru í sóttkví vegna Covid-19 faraldursins á Austurlandi og enginn er smitaður.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is. Fimm einstaklingar eru í sóttkví eystra.

Í morgun voru gefnar út nýjar reglur um grímunotkun í staðnámi í framhaldsskólum og háskólum. Valkvætt er hvort þær séu notaðar í skólum á Austurlandi en skylda er að bera þær á höfuðborgarsvæðinu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar