Lokunin mikið áfall fyrir starfsfólkið

Trúnaðarmaður starfsfólks í bolfiskvinnslu Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði segir lokun vinnslunnar mikið áfall. Því líði vel á staðnum og vonist eftir að finna þar aðra vinnu.

„Fyrst var fundur klukkan ellefu í morgun. Framkvæmdastjórinn tilkynnti mér sem trúnaðarmanni og nokkrum yfirmönnum ákvörðunina. Klukkan tólf var almennur starfsmannafundur.

Fyrst eftir að framkvæmdastjórinn tilkynnti ákvörðunina var algjör þögn. Í nokkrar mínútur var ekki sagt eitt orð. Síðan byrjuðu spurningarnar. Fólk vildi vita um uppsagnarfrestinn og önnur réttindi.

Fundinum lauk um klukkan eitt. Fólkið var í áfalli. Okkur bauðst að hætta vinnu og fara heim. Flest okkar þáðu það, einhver héldu aðeins áfram til að klára þau verk sem þau voru með í höndunum,“ segir Marianna Weinrauch, trúnaðarmaður AFLs starfsgreinafélags meðal starfsfólks í vinnslunni.

Það hafði líka áhrif að fréttatilkynning Síldarvinnslunnar um lokunin var send fjölmiðlum og þar af leiðandi birt klukkan 11:20 í morgun, það er að segja áður en almennur starfsmannafundur hófst. „Fólk var búið að sjá þetta á Facebook og fleiri miðlum. Það var ekki gott,“ segir Marianna.

Mögulegar á vinnu annars staðar


Samkvæmt tilkynningu Síldarvinnslunnar frá í morgun verður vinnslu hætt 30. nóvember. Þar segir að að ástæðan sé að uppfæra þurfi tækjakost vinnslunnar verulega í takt við breytingar á fiskmörkuðum. Það kosti fjármuni sem svo lítil eining standi ekki undir.

Þrjátíu einstaklingar missa vinnuna vegna breytinganna. Þeim standa til boða störf hjá öðrum einingum Síldarvinnslunnar á Norðfirði og í Grindavík auk þess sem nokkur störf eru laus við fiskimjölsverksmiðjuna á Seyðisfirði.

Marianna segir að á fundunum í morgun hafi komið fram að öllu starfsfólkinu á Seyðisfirði standi til boða vinna á öðrum starfsstöðvum Síldarvinnslunnar, annað hvort á Norðfirði eða í Grindavík auk þess sem einhver störf séu laus við fiskimjölsverksmiðjuna á Seyðisfirði. Þá fái starfsfólkið fjögurra mánaða uppsagnarfrest og verði þar með á launum fram í janúar.

Þá séu framundan fleiri fundir áður en til lokunarinnar komi. AFL starfsgreinafélag áformar að funda með starfsfólki eftir helgi. „Við bíðum aðeins eftir hvað fram kemur á þeim fundi.“

Vonast eftir að finna aðra vinnu á Seyðisfirði


Hún segir fólkið hafa tekið sér frí seinni partinn í dag til að íhuga stöðu sína. Hún lýsir samhug meðal starfsfólksins sem almennt sé ánægt á Seyðisfirði. „Þetta er tiltölulega lítill vinnustaður þar sem við höfum unnið náið saman og þekkjumst vel. Sumt starfsfólkið hefur unnið þarna lengi og var farið að nálgast eftirlaunaaldurinn. Fyrir margt af því fólki er þetta mikið áfall. Við erum eins og fjölskylda. Við höfum ferðast saman og hist utan vinnu.“

Marianna er sjálf fædd í Ungverjalandi en lítur á Prag í Tékklandi sem sína heimaborg utan Seyðisfjaðrar. Hún hefur verið þar síðan í febrúar 2015. „Mér finnst þetta mjög slæm tíðindi. Ég elska Ísland og Seyðisfjörð. Ég hef stundum íhugað að fara aftur til Prag en aldrei látið verða af því.

Mig langar að vera áfram hér því ég elska fólkið og samfélagið hérna. Ég hef eignast marga vini hér, unga sem aldna. Ég veit að mörg okkar eiga ekki auðvelt með að umturna lífi sínu, til dæmis foreldra með börn sín í skólanum. Mér finnst ég heyra á fólkinu að það vilji vera hér.“

Marianna segir lokunina ekki algjörlega koma á óvart því áhyggjur hafi verið af framtíðinni eftir skriðurnar í desember 2020. Bæði fyrir þær og eftir þurfti að hætta vinnu í frystihúsinu vegna hættuástands. „Við ræddum okkar á milli eftir skriðurnar að frystihúsinu yrði lokað því það væri svo erfitt að flytja það á nýjan stað. Það breytir því ekki að tíðindin í dag voru áfall fyrir mörg okkar.“

Hún bindur vonir við framtíðina þrátt fyrir erfiðan dag. „Við höfum gengið í gegnum ýmislegt hér og lífið heldur áfram.“

Marianna fyrir miðju. Mynd: Síldarvinnslan/Ómar

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.