Litlu munaði að kviknaði í gufubaðinu
Gufubaðsklefi Íþróttahússins á Seyðisfirði er ónothæfur eftir að of í honum ofhitnaði í gær. Litlu máttu muna að eldur kæmi upp í klefanum og breiddist út.„Forstöðukonan hringdi og sagði að loftræstikerfið hefði slegið út og hún fyndi skrýtna lykt,“ segir Kristján Kristjánsson forstöðumaður áhaldahúss Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Kyndiofn í gufubaðinu hætti ekki að hitna og þegar starfsmenn bæjarins komu á staðinn var timbrið umhverfis hann orðið kolsvart og byrjað að rjúka úr því. „Það má segja að starfsmenn áhaldahússins hafi komið á hárréttu augnabliki. Það var sekúnduspursmál um hvenær hefði farið að loga í,“ segir Kristján og bætir við kátur: „Ég er slökkviliðsmaður þannig það gat ekki hist á betur.“
Starfsmennirnir sprautuðu á ofninn til að kæla hann niður og fullvissuðu sig svo um að hitinn hefði ekki náð að teygja sig lengra með að rífa niður þakið í klefanum.
Ekki er vitað hve lengi gufubaðið verður ónothæft og Sundhöllin er lokuð til 7. mars vegna endurbóta.