Líkamsárás á Reyðarfirði
Lögreglan á Austurlandi rannsakar líkamsárás í heimahúsi á Reyðarfirði um síðustu helgi. Málið telst að mestu upplýst.Karlmaður réðist á konu á heimili hennar á Reyðarfirði um síðustu helgi. Konan hlaut meiðsli en ekki alvarleg.
Gerandinn var farinn af staðnum þegar lögregla kom á svæðið en haft var uppi á honum skömmu síðar. Málið er til skoðunar hjá lögreglunni á Austurlandi en þær upplýsingar fengust þar í morgun að málsatvik lægju að mestu leyti ljós fyrir.
Lögreglan beinir þeim tilmælum að sýna aðgát við ferð á fjallvegum í kvöld. Nokkuð hlýtt er í veðri eystra og bráð en afar hált gæti orðið í kvöld og um helgina eftir að frystir.