Kristín hætt í bæjarstjórn

Kristín Gestsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, hefur óskað eftir lausn frá störfum í bæjarstjórn þar sem hún er flutt úr bæjarfélaginu.


Dýrunn Pála Skaftadóttir verður þá aðalbæjarfulltrúi í hennar stað og Ragnar Sigurðsson fyrsti varamaður.

Kristín var einnig formaður íþrótta- og tómstundanefndar. Þórdís Mjöll Benediktsdóttir við því embætti.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar