Kosningaaldur lækki fyrst á sveitarstjórnarstigi
Ungmennaráði Múlaþings þykir eðlilegra að byrjað yrði á að lækka kosningaaldur til sveitarstjórnarkosninga áður en breytingar yrðu gerðar á kosningaaldri til alþingiskosninga.Þetta kemur fram í umsögn ungmennaráðsins um frumvarp til laga um stjórnskipunarlög (kosningaaldur) á Alþingi. Það var stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sem sendi ungmennaráðinu frumvarpið með beiðni um umsögn.
„Ungmennaráð Múlaþings lýsir yfir ánægju með umræðu um kosningaaldur. Ungmenni á Íslandi byrja að borga fullan skatt við 16 ára aldur og því er rökrétt að þau hafi eitthvað um það að segja í hvað þeirra skattpeningar eru notaðir,“ segir í umsögninni.
„Aftur á móti telur ráðið sig ekki geta lýst yfir ánægju með frumvarpið í heild, þar sem því þykir innihald þess ekki eins og best verður á kosið. Ráðinu þykir eðlilegra að byrjað yrði á að lækka kosningaaldur til sveitarstjórnarkosninga áður en breytingar yrðu gerðar á kosningaaldri til alþingiskosninga. Þá gæti m.a. komið reynsla á fyrirkomulagsbreytingar, kjörsókn og stefnuskrár framboða.“
Þá segir í umsögninni að Ungmennaráð Múlaþings áréttar að það fagnar því að hugað sé að aukinni lýðræðisþátttöku ungmenna, enda eru hagsmunir ungs fólks oft frábrugðnir þeirra sem eldri eru.