Jeppi lenti á húsvegg

Mildi er að enginn slasaðist þegar jeppi rakst á útvegg hússins sem hýsir Nettó á Egilsstöðum í gær.


Atvikið átti sér stað um klukkan fjögur. Ökumaður jeppabifreiðar var að leggja henni í stæði við húsið. Í stað þess að staðnæmast þar fór bíllinn áfram, skall á húsinu af töluverðu afli og tók vinkilbeygju áður en hann staðnæmdist uppi á gangstéttinni.

Ökumann sakaði ekki og engan vegfarenda heldur, en nokkrir voru á leið við verslunina um þetta leiti.

Í frétt RÚV er haft eftir lögreglu að stýrisbúnaður bílsins hafi bilað. Lögregla gat ekki veitt nánari upplýsingar um atburðinn þegar Austurfrétt leitaði eftir því í dag.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar