Íbúar á Seyðisfirði hvattir til að leita í Sæból

Íbúar sem rýmt hafa hús sín og þurfa nauðsynjar eru hvattir til að leita í Sæból, hús björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði. Þar bíður aðstoð við að fara inn á svæðið auk nýjustu upplýsinga.

 

Þetta segir í nýrri tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi. Heldur dró úr úrkomu og vatnsaga á Seyðisfirði í gærkvöldi og nótt. Síðasta aurskriðan sem vitað er um féll um klukkan tíu í gærkvöldi en eftir það virðist ástand hafa náð meira jafnvægi. Engar skriður hafa fallið í morgun eftir því sem best er vitað. Beðið er birtingar til að kanna betur aðstæður.

Lögreglan stefnir að því frá og með hádegi í dag að senda reglulega SMS skilaboð til þeirra sem eru á Seyðisfirði með upplýsingum og leiðbeiningum. Skilaboðin eru send í samvinnu við Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra. Upplýsinga fyrir íbúa á Seyðisfirði er því að leita í björgunarsveitarhúsinu á Seyðisfirði auk þess sem fréttatilkynningar verða reglulega sendar á þessum vettvangi og á fésbók lögreglu auk SMS skilaboða eins og áður sagði. Þá má leita upplýsinga á heimasíðu Múlaþings, mulathing.is, að því er segir í tilkynningunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar