Hundasvæði vísað til heimastjórnar
Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings hefur samþykkt fyrir sitt leyti staðsetningu á fyrirhuguðu hundasvæði á Egilsstöðum. Ráðið vísaði málinu jafnframt til heimastjórrnar Fljótsdalshéraðs til afgreiðslu.Fyrirhugað hundasvæði mun verða í grennd við skautavellið á Egilsstöðum. Önnur staðsetning var í sigtinu áður.
Í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs segir að fyrir ráðinu liggur tillaga að staðsetningu hundasvæðis á Egilsstöðum frá fulltrúa hundaeigenda. Umhverfis- og framkvæmdanefnd Fljótsdalshéraðs hafði áður samþykkt að styrkja félagsskap hundaeigenda til að koma upp afgirtu svæði, en á öðrum stað.
Eftirfarandi tillaga var síðan lögð fram og samþykkt samhljóða: „Umhverfis- og framkvæmdaráð leggst ekki gegn þeirri staðsetningu sem lögð er til í fyrirliggjandi erindi, með þeim fyrirvara að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða, en vísar málinu til afgreiðslu hjá heimastjórn Fljótsdalshéraðs.“
Einn nefndarmanna á fundinum, Pétur Heimisson, lét síðan bóka: „Ég samþykki framlagða tillögu en legg áherslu á að málið verði sett í grenndarkynningu.“