Hreinsunarstarf gengur hægt á Seyðisfirði vegna úrkomu

Heldur hefur bætt í úrkomu á Seyðisfirði. Hreinsunarstarf gengur því hægt þar sem mörg svæði eru enn lokuð. Vinna er þó í gangi og metið reglulega hversu mikið og hratt hægt er að stækka vinnusvæðið.

Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir að ekki þykir enn óhætt fyrir íbúa á rýmingarsvæðum að huga að húsum sínum. Það er þó til mats einnig og verður kynnt um leið og það þykir óhætt. Íbúar annars hvattir til að leita frekari upplýsinga hjá vettvangsstjórn í húsi björgunarsveitarinnar Ísólfs.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar