Hoffell á leið í land með 500 tonn af síld

Hoffell er á landleið með 500 tonn af síld sem fengin var vestur af Reykjanesi.

Þetta kemur frá á vefsíðu Loðnuvinnslunnar.  Þar segir að skipið togaði aðeins í eina klukkustund og fékk þessi 500 tonn. Mikið er af síld að sjá á þessum slóðum og torfan margar mílur að stærð.

Fram kemur að Hoffell kemur til hafnar í nótt á Fáskrúðsfirði.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar