Hert umferðareftirlit um helgina
Lögreglan á Austurlandi verður sýnileg á vegum umdæmisins um helgina. Von er á mikilli umferð þar sem tvær stórar hátíðir fara fram, annars vegar Bræðslan á Borgarfirði og hins vegar Franskir dagar á Fáskrúðsfirði.„Við verðum með öflugt eftirlit, bæði með hrakaakstri og ölvunarakstri,“ segir Snjólaug Guðmundsdóttir, lögregluvarðstjóri á Egilsstöðum.
Umferðin niður á Borgarfjörð hefur verið að aukast jafnt og þétt. „Hún hefur gengið vel og við vonum að það verði þannig áfram.“
Frá Egilsstöðum til Borgarfjarðar er yfirleitt farið í gegnum Eiða en þar í gegn er 50 km hámarkshraði. Fimmtán ökumenn hafa verið teknir þar fyrir of hraðan akstur í dag og í gær.
„Íbúar á Eiðum hafa oft kvartað yfir hraðakstri á þessari helgi þar sem umferðin er mikil og þess vegna höfum við haft sérstakar gætur þar á.“