Helgin: Fornleifar, frjálsíþróttir og listir
Málþing verður haldið um fornleifauppgröftinn á Stöðvarfirði um helgina, nýjar listsýningar opna, Meistaramót í frjálsíþróttum og tónleikar.Félag áhugafólks um fornleifarannsóknir að Stöð í Stöðvarfirði stendur fyrir málþinginu í Stöðvarfjarðarskóla klukkan 14:00 á morgun. Framsögumenn verða Bjarni F. Einarsson, stjórnandi rannsóknarinnar, Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði og Haukur Árni Björgvinsson, landfræðingur.
Tónleikar með lögum við ljóð Þórarins Eldjárns verða á tveimur stöðum eystra á sunnudag. Annars vegar í Frystihúsinu á Breiðdalsvík klukkan 16:00 og á Eskifirði klukkan 20:00. Erla Dóra Vogler söngkona hefur leitt undirbúning tónleikanna en Lilja Guðmundsdóttir syngur með henni og Eva Þyri Hilmarsdóttir leikur undir.
Tónlistarstundir á Héraði halda áfram í Egilsstaðakirkju klukkan 20:00 á sunnudag. Systurnar Joanna Natalia og Maria Anna Szczelina leika þar á píanó og orgel en Úlfar Trausti Þórðarson tenór syngur auk þess sem Torvald Gjerde leikur með.
Í Neskaupstað opnar ljósmyndasýningin Kaupmaðurinn á horninu á morgun, laugardaginn 19. júní, í Þórsörk. Á sýningunni er að finna ljósmyndir Sigríðar Marrow af kaupmönnum hverfisverslana og bæja á landsbyggðinni en m.a. er að finna myndir úr Kaupfjelaginu Breiðdalsvík og af Nesbæ.
Kvenfélagið Björk stendur fyrir kaffihlaðborði í Hjaltalundi á morgun klukkan 15:00. Félag ljóðaunnenda á Austurlandi verður þar með dagskrá þar sem bækurnar „Ég skal segja ykkur það“ eftir Sólveigu Björnsdóttur og „Raddir daganna“ eftir Hannes Sigurðsson verða kynntar.
Eitt stærsta frjálsíþróttamót ársins verður haldið á Vilhjálmsvelli um helgina þar sem Meistaramót Íslands 11-14 ára fer fram. Keppni hefst klukkan 9:30 að morgni laugardags og stendur fram yfir klukkan þrjú. Keppt verður á svipuðum tíma á sunnudag.
Keppni í Íslandmótinu í knattspyrnu heldur áfram. Í annarri deild karla tekur Leiknir á móti Þrótti Vogum á morgun en Fjarðabyggð fer í Breiðholtið og mætir ÍR. Í þriðju deildinni tekur Höttur/Huginn á móti Augnabliki á morgun en Einherji fær Ægi í heimsókn á sunnudag. Í annarri deild kvenna fer Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir norður í land og mætir Hömrunum.